Monday, July 18, 2005

Fyrirgefðu, kúkur.

Fyrst að ég átti frí í vinnunni ákvað ég að taka einn daginn snemma og kíkja til Kanayama þar sem ég ætlaði að hitta á hann Kato síðar um daginn. Labbaði um þar til að ég áttaði mig á því að þessi staður er skítapleis. Fann samt eina stóra verslunarmiðstöð og þar inni lærði ég hvernig á að biðja pabba sinn eða einhvern annan pabba að skeina sér. Maður segir Otoosan, iru!.


Eitt af fyndnari kvöldum hérna var þegar að hópur af fólki sem er að vinna í Norðurlandaskálanum á Expo fór saman á staðinn J Max. Það sem dróg alla saman á þennan stað var að það voru tvö dansgólf og ódýrir drykkir. Þegar ég labbaði inn kom bara bros á mig sem hélst á mér næstum allt kvöldið. Tilfinningin var samblanda af örlítilli hræðslu og gleðilegri undrun. Ég var komin í samkunduhús ikemen gauranna, alvöru stað þar sem þetta fólk heldur sig. Ég hélt alltaf að þetta væri bara eitthvað stórt djók. Það sem ég komst að var að þessi hópur dansar við trance tónlist og allir kunna allaveganna einn dans sem að allir eiga að gera samtímis á ákveðnum stöðum í lögunum. Þetta spesimen af japönskum karlmanni eyðir líka miklum tíma við vaskinn á klósettinu til að rétta af þennan eina lokk sem að var búinn að vera til vandræða og spreyja á sig einhvers konar spreyji sem að ég held gerir þá fallega. Mest sjokkerandi uppgötvunin var að þeir eru allir með vagínur á bakinu.


Finnarnir i vinnunni eru algjörir snillingar. Út af því að finnska er svo steikt tungumál. Það er einn í vinnunni sem heitir Sami (borið fram Sammy) sem að talar með svo þykkum finnskum hreim og er svo mikill dóni að ég hlæ alltaf þegar hann byrjar að tala, jafnvel þótt að hann sé að tala um eitthvað mjög leiðinlegt. Framburðurinn er svo hressandi.

Það varð allt alveg klikkað í vinnunni fimmtánda þegar að íslenski dagurinn var á Expo. Við fengum 2 kóra í heimsókn og slatta af tónlistarmönnum, svo ekki sé talað um Dóra Ásgríms og Toggu Katrínu á sýninguna sem var haldin og svo í skálann. Fyrst að ég er einn af þessum fáu sem að tala einhverja íslensku var ég fenginn til að kenna Halldóri Ásgrímssyni til að setja skilaboð á A4 pappírsblað með hjálp tölvu og brjóta saman pappabát úr blaðinu. Það dæmi er seinasti hluti skálans. Hann skrifaði We have to work together og fleytti svo bátnum. Mjög "inspiring".


Það var einhver sérstaklega klár bissnessmaður sem að hefur ákveðið að gera þennan vöðvasöngleik. Þetta er einhver risaframleiðsla og undir lokin af dvölinni í Tokyo var verið að bomba auglýsingum um þetta upp í analinn á fólki.

Kvöldið fyrir íslenska daginn var okkur Ragga boðið í kvöldverðarboð og móttöku í Chiryu. Nagahata-sensei var kynnir kvöldsins og var að drepa allt heilvita fólk þarna inni með túlksstarfsemi. Hún var að þýða ræðu hjá formanni einhvers frímúraradæmis og toppaði slæmu þýðinguna með því að segja Please cooperate us! með sinni skræku og óþægilegu röddu. Svo kunni hún ekki heldur að nota míkrafón, blessunin.

Plönin hafa breyst einu sinni enn. Ég kem núna heim 14. ágúst.


Fann þennan bol í dag. Hefði hann ekki verið svona dýr þá hefði ég verslað mér hann. Finnst þetta help me!! mjög flott "touch" á annars mjög cutting-edge bol. Meiri myndir af bull ensku og undarlegheitum.


Þegar ég kíkti út að éta með hóp af vinum Kato þá náði ég að fá Uno til að teikna mynd af mér. Svo ætla ég að transa þá mynd í nafnspjald sem verður heitt dæmi. Bað sérstaklega um að vera á bakinu á "stóru tígrisdýri" og haldandi á keytar. Vinna á morgun og non-stop í viku. Hætti að vinna eftir Múmín-daginn 9. ágúst. Ég þarf kannski að fara að klæðast víkingabúningi annað slagið í vinnunni. Þá get ég loksins farið að hræða börn og fengið borgað fyrir það.

Friday, July 08, 2005

Sou desu ne

Kominn og byrjaður að vinna á Expo. Flutningurinn úr íbúðinni varð mega-strembinn og ég var daginn sem ég átti að skila lyklunum á fullu frá snemma um morguninn og fram til sex um kvöldið þegar kerlingin mætti á svæðið með eiginmanninum til að skoða hvort ég hafi brotið eitthvað meðan á dvölinni stóð. Ég bjóst við einhverjum anal í henni varðandi trygginguna en svo borgaði mér hún alla summuna.


Setsuko, sjötuga japanska konan sem að ég kenni íslensku stundum, bauð mér í sushi rétt áður en ég flutti hingað til Nagoya. Síðan að kennsludæmið byrjaði hefur hún alltaf verið að reyna að kenna mér eins mikið og hægt er um japanska menningu og í þetta skiptið langaði henni að bjóða mér í alvöru sushi. Þess vegna dróg hin mig á Imperial Hotel Tokyo sem er rétt hjá keisarahöllinni og fyrsta hótelið sem var byggt í Japan (kannski). Við fórum á Sushi Gen veitingastaðinn sem er á kjallarahæðinni og borðuðum dýrindis sushi. Reikningurinn hljómaði upp á 32.200 yen fyrir okkur tvö. Búið.

Þegar skólanum slúttaði var svo haldið svaka "nomikai" þar sem allir hittust á izakaya í Shinjuku og drukku eins og þeir gátu. Færri skiptinemar en ég hélt að myndu mæta og kanarnir sem að mættu voru flestir frekar leiðinlegir og miklir kanar fullir, hins vegar komu líka krakkarnir úr bekknum mínum og kvöldið endaði á því að allt fólkið sagði bless við hvort annað með pínu sorglegheitum.


Eftir allt stressið með að flytja flutti ég allt dótið yfir til Kazuya í Den-en-chofu og gisti þar eina nótt. Til þess að ganga frá flestu þurfti ég svo að senda einn pakka af fötum heim og skilja eftir pönnukökuduftið og pönnuna hjá honum Kazuya. Þegar ég mætti til Nagoya var tekið á móti mér á lestarstöðinni og þegar töskurnar voru komnar inn í hús var farið út að éta og ég var kynntur fyrir flestum leiðsögumönnunum í Norðurlandaskálanum.

Húsnæðið sem við fáum hérna er magnað. Við fáum öll blokkaríbúðir sem að tveir til þrír deila með sér. Ef ég deili íbúðinni í tvennt sem ég er í með Drífu (sem var að koma frá Íslandi) er ég samt með meira pláss en ég var með í íbúðinni í Tokyo. Svo gefur liðið sem sér um að hreinsa út ruslið frí "handjob". Úr gulli.

Fyrsti vinnudagurinn var skemmtó því að skálanum var lokað frá tólf til þrjú.


Japanskan á eftir að transast eitthvað mega-scheisse því að ég geri varla neitt annað en að tala við fólk á japönsku allan daginn inni í skálanum. Útlendingar eru víst einungis fimm prósent af heildargestunum á heimssýninguna þannig að annað slagið verð ég að segja "Welcome to the pavilion. Have a nice day, you sleazy foreigner bastard. I hate your kids."


Þetta lag eftir þessa stelpu er mjög dæmigert fyrir japanskt popp. Nema að hún er með mjög skræka rödd. Þessi plata kom út á árinu og þetta lag var að gera mig örlítið geðveikan því það var alltaf að spilast alls staðar. En njótið, þetta er de la japonaise culturée.


Sigurvegarinn sem mun fá æðislegan T-bol í pósti er beðinn um að senda á mig póstfang á e-mailið. Congratsulay.

Vinnan er komin á fullt skrið núna eftir að þjálfunin er búin þannig og svo er íslenski "National Day" í næstu viku. Sem þýðir Bang Gang og barnakórar. Í 7 klukkustundir. Með engum hléum. Eða bara píka! Aftur.