Thursday, June 23, 2005

Fire Hurdle Staato!

Eftir íslenskukennsluna í dag hitti ég á Kamasaka sem er einn af nemendunum, fyrsta árs nemi frá einhverjum bæ fyrir utan Tokyo. Hann fílar Tokyo á daginn en hatar Tokyo á kvöldin. Allir vinir hans eru sammála um þetta. Hann býr í níutíu þúsund manna bæ, einn og hálfan tíma út frá Shinjuku sem er aðal samgönguæðin hérna í Tokyo. Bærinn hans er umkringdur fjöllum, 3 fjöll sem að umlykja bæinn. Þar sem er ekki fjall eru lestarteinar sem liggja til Tokyo. Það er víst ekkert í þessum bæ og allir kvarta yfir því. Engar almennilegar búðir, bara hótel fyrir fjallgöngugarpa sem að leggja leið sína þangað.


Það er þá næstum því frágengið, ég er að fara að verða út ágúst í Japan. Það var verið að bjóða mér vinnu sem leiðsögugaur í skálanum sem að Norðurlöndin plús Ísland eru með. Ef að allt gengur eftir flyt ég til Nagoya í byrjun næsta mánaðar og byrja strax að vinna á fullu. Þetta bjargar fjárhagsstöðunni minni nokkuð fyrir næsta vetur því ég var byrjaður að senda bréf, blaut með grátri, til KB Banka í Kringlunni. Þegar þau komast að því hver sendi þau þá gerist eitthvað frábært. Með vinnuna þá er hins vegar ekki búið að ganga frá þessu 100% en þetta kemur í ljós á næstu dögum.

Lendi síoftar í því núna að verða spurður spurninga um hvaða ímynd ég hafði af Japan áður en ég kom hingað fyrst og hvernig hún hefur breyst svo. Ég hef alltaf gefið bara eitthvað frekar mikið bull svar sem á samt stoð í raunveruleikanum en ég áttaði mig á því hvernig ég á að svara þessari spurningu. Ég hélt að Japan væri nákvæmlega eins og fyrstu 45 mínúturnar í teiknimyndinni Akira. Þegar ég verð beðinn um að útskýra þetta nánar þá ætla ég að hlaupa í burtu.

Seinasti japönskutíminn var í dag. Seinasta prófið mitt var í gær. Ég er frjáls.


Ég man eftir því fyrir löngu síðan að sjá link af batman.is á mynd af tveimur köttum sem var búið að klæða upp og pósa með lítil mótorhjól í bakgrunni. Ég rakst af tilviljun á búð sem selur varning Satoru Tsuda sem rekur þetta kompaní sem kallast Nameneko sem framleiðir þessar myndir allar saman. Ég grét og pissaði á mig örlítið þegar ég skoðaði mig um í búðinni. Þetta var bara svo mikið fyrir skilningarvitin. Endaði með því að kaupa tvær stílabækur, aðra með auglýsingu fyrir hip hop partí fyrir ketti með Super DJ Matakichi og gestaplötusnúðnum Tiger Cat. Hin var með "biker köttum" og annar kötturinn á þeirri mynd er með Hitler-skegg að er virðist. Bestu kaupin voru samt hiklaust þessi hljómsveit af 80's köttum.


Sautjándi júní var haldinn hátíðlegur í sendiráðinu í Shinagawa og ég lét mig ekki vanta í fögnuðinn. Ég fór beint úr skoðunarferð um Asahi bjórverksmiðju í drykkju og veitingar í sendiráðinu. Ég endaði í Roppongi á mexíkönskum bar. Allt sem gerðist þar á milli ætla ég að leyfa ykkur að ráða.

Chample DVD diskurinn er kominn í hús og hann er mjög töff. Eina sem er sköll við hann er að þeir tímdu ekki að "license-era" tónlistina sem að dansararnir notuðu þannig að allur diskurinn er troðfullur af lélegum skemmtara-drifnum kóperingum af lögunum. En það er freestyle battle milli Hitoridedekirumon og Hikaru!

Gef tíma fram á næsta póst til að taka þátt í keppninni. Smelli upp nafni vinningshafans þá eftir nokkra daga. Ég ætla að kaupa mér PSP. Staðráðinn. Hitinn og rakinn er orðinn svo mikið að feitu Bandaríkjamennirnir í skólanum eru bráðnaðir í sitt upprunalega form, smjör. Baskin Robbins er búið að vera opið í tæpa viku beint hinum megin við götuna en ég hef ekki ennþá farið. Það er hægt að borga gos úr sjálfsala með farsímanum núna og fyrir nýjasta kreditkortið sem er verið að auglýsa er notaður handalestur til að auðkenna notenda kortsins. Hraðbankinn les hvar æðarnar eru staðsettar. Eins og er mega konur ekki sækja um kortið því þær eru ekki með æðar.

Sunday, June 12, 2005

Bardie

Það er þá ákveðið, ég kem heim 22. júlí. Breytti miðanum fyrir nokkrum dögum. Hreinast sagt vildi ég vera aðeins lengur hérna en ég er líka á sama tíma byrjaður að hlakka mjög mikið að koma heim. Tuttugasti og annar júlí var akkúrat milli þess að fara beint heim eftir skólann og þess að vera út sumarið.

Önnur ástæða þess að ég valdi þessa dagsetningu var út af því að ég var að fá smá vinnu á heimssýningunni í júlí. Fer þrettánda júlí og verð út þann sautjánda að vinna sem túlkur/þýðandi og hjálpa til við undirbúninginn á íslenska deginum sem verður þann fimmtánda. Verður töff. Svo hef ég þá 4-5 daga eftir það til að kveðja alla í Tokyo og taka því rólega.


Af þeim tólf rásum sem ég næ á sjónvarpinu eru þrjár "home shopping" stöðvar. Ein af þeim er lókal stöð sem er rekin fyrir nágrennið. Á þeirri stöð er oft hægt að finna mjög svo kvenlegan ungan mann að vera að selja algjört drasl, oftast eftir miðnætti, og það er ógeðslega fyndið að horfa á hann. Á myndinni er hann að reyna að sannfæra fólk um að kaupa risastóra og mjög ósmekklega poppgerðarvél á rúmar fimm þúsund krónur íslenskar. Ég hlýt að hafa horft á kynninguna hans í 20 mínútur. Hann hélt áfram og áfram að tala um hversu sniðug þessi vél væri fyrir börnin og hversu spennandi það væri að sjá poppið hrynja út um framlúguna á þessu voðaverki. Allt á svo rosalega effeminískan og blíðan hátt. "Ææi sjáiði.. er þetta ekki æðislegt.. poppadoppdopp.. mmmmm.. svo gott popp!.. falleg hönnun... ". Var mjög-sehr schisst. Næsta vara verður eitthvað rosaleg.

Fór í fyrradag að reyna að sjá Soil & Pimp Sessions spila læv í sjónvarpsþættinum Factory sem er á Fuji TV. Mætti á svæðið og fylgdi haug af fólki inn í eitthvað herbergi þar sem við áttum þaðan að verða leidd út á sett-ið. Svo kemur tilkynning að allir þeir sem ætluðu að taka þátt í prógramminu yrðu að vera þarna til klukkan hálf-tíu um kvöldið. Á þessu augnabliki var klukkan nýslegin þrjú og maður var þegar búinn að vera þarna í hálftíma. Þegar smá slatti af fólki stóð upp og labbaði í átt að hurðinni þá breyttist tíminn í 20:00. Ég fór að hurðinni og spurði hvort það væri einhver sjens að horfa á Soil og beila eftir það en það var ekki sjens. Ég fór út og þá reyndi staffið að halda í þá sem vildu fara með að bjóða þá frábæru milligönguleið = 19.30. Ég þurfti að fara og missti af tækifærinu að sjá þá spila og vera einn af 200 í einhverjum random japönskum sjónvarpsþætti sem er sýndur á nóttunni.


Eftir FujiTV var ferðinni haldið á opnun á sýningu hjá Dyezu sem er hópur af graffiti, hjólabrettafólki, ljósmyndurum og alls kyns listapakki. Mjög fínu listapakki samt. Ég tók vídjókameruna sem ég fékk lánaða hjá Yuka með og tók yfir klukkutíma af vídjói og um 300 ljósmyndir fyrir lítið heimildarmyndarprójekt sem að ég útskýri seinna meir. Partíið byrjaði mjög snemma, eða um fjögur, og hélt áfram langt fram á kvöld. Þetta var gjörsamlega klikkað gaman. Hitti á nokkra sem ég kannaðist við og lenti á smá spjalli en var meirihlutann af tímanum að taka myndir og filma. Kynntist líka nýju fólki sem er alltaf mjög gott, frægt táningstímarita-módel sem heitir "Yoppi" og svo hóp af stelpum sem að voru miklir aðdáendur Bjarkar og Sigur Rós. Helanir kvöldsins voru: risastór melóna sem var sprengd, hjólabrettagaurarnir að skeita innbúið í klessu og helað tónleikaprógramm hjá conga-spilara og rafmagnsgítars glamrara. Myndir.


Ég og Lee, kunningi úr skólanum, kíktum til Harajuku í dag að rölta og skoða okkur um. Hann hafði lítið farið til Harajuku þannig að ég leyddi hann um þá staði sem ég þekkti sem var eitthvað varið í og svo var þetta líka að stórum hluta til mjög mikið space-labb. Við kíktum inn í byggingu sem að símafyrirtækið KDDI rekur og kallast Design Studio. Strax á fyrstu hæðinni fundum við ódýra boli með vafasamri ensku. Strax eftir það fundum við þetta skilti við hliðina á stiganum:


Við fórum upp á aðra hæð og létum gera nafnspjöld handa okkur, alveg frítt. Kíktum á hæðirnar að ofan og fórum svo aftur niður á aðra hæð til að ná í nafnspjöldin. Eftir að stelpan í afgreiðslunni var búinn að gefa okkur pokana með nafnspjöldunum hóf hún smá spjall og spurði okkur meðal annars hvað við værum að gera hérna í Tokyo og hvaðan við kæmum og svona. Svo, hálf vandræðalega, spyr hún okkur hvað við höfðum verið að taka myndir af á fyrstu hæðinni. Ég hikaði smávegis þar sem ég vildi ekki þurfa að útskýra hvað BJ stendur fyrir á ensku með handahreyfingum. Í staðinn sagði ég bara að það sem við höfðum verið að ljósmynda væri "athyglisvert". Síðan segir hún:

"Við ættum að breyta þessu, er það ekki? Það eru alltaf útlendingar að koma hérna inn og taka myndir."

Ég gat ekki gert neitt annað en að vera sammála. Og þar með lýkur sögunni af skiltinu í Harajuku.


keppni. Til þess að eiga möguleika að eignast þennan stórkostlega bol þá þarftu að senda mér skeyti á arni_k@hotmail.com með tengil á mynd af hundi og ketti saman á mynd. Bannað að senda mér myndir bara af hundum eða bara af köttum. Þetta verður að vera einn köttur og einn hundur. Óþarfi að senda mér myndina heldur, bara slóðina á hana svo ég geti skoðað hana. Bæta við svo heimilisfangi og fullu nafni! Bolurinn er 'L' stærð en það myndi vera rétt rúmlega medium í Evrópu eða alls staðar annars staðar í heiminum. Happy goings!

Sem hluti af heimildarmyndardæminu fer ég svo til Dyezu aftur í vikunni og tek viðtöl. Svo er planið að kíkja í ping-pong líka. Og karaoke á morgun. Og á Baskin Robbins sem var að opna hinum megin við götuna.

Sunday, June 05, 2005

Sherpagram

Ég get með stolti sagt að ég eyddi einungis 325 yenum í gær. Hins vegar eyddi ég tæpum 5000 yenum í dag. Gærdagurinn fór í innihangs og ýmsar reddingsverk en dagurinn í dag fór í að hitta Ernu, systur 7bergsins, og versla örlítið í Shibuya. Náði að plögga mér 5 nýjum LaserDiskum á 1000 yen, þ.á.m. innsigluðu eintaki af Groundhog Day og svo Brazil hans Terry Gilliam. Mjög slickery smooth purchasing.

Fyrst að ég hef ekki sett inn neinar myndir hérna í langan tíma datt mér í hug að gera "Best of" af myndunum sem ég hef tekið á símann síðastliðnar vikur. Er nánast hættur að taka myndir nema að ég finn eitthvað steikt sem vekur áhuga. Það sem vakti athygli mína í dag var þessi kvenmannsbolur sem er með jamaican engrish. Mjög nýjungagjarnt.


Andlega vanheila konan sem er búin að búa á lestarstöðinni rétt hjá heimili mínu í núna tæpa tvo mánuði hefur uppfært geðsýkina. Í staðinn fyrir að sitja bara með allan farangurinn sinn á vagni við hliðina á sér, í burtu frá mannstraumnum, þá sá ég hana um daginn standa í miðjum gangveginum að reyna að opna hurð sem var ekki til staðar. Mér finnst það nokkuð merkilegt hvað andlega vanheilt fólk sækist í lestarstöðvar. Hef séð marga tugi við Shinjuku lestarstöðina til dæmis. Hlýtur að vera út af lestunum.


Ég var bara að sjá fyndnasta karakter í skemmtiþætti sem ég hef nokkurn tímann séð.. í Japan.. meðan ég hef verið að horfa á 14" sjónvarp. Karakterinn kemur fram vikulega í þættinum Bakuten og kallast HARDGAY, eða haadogei á japönsku. Þetta er geðveikt aggressívur leðurhommi sem er klæddur í þröngan fatnað eins og sést á myndinni. Það sem hann gerir er að fara á mismunandi staði og gera allt á hardgay hátt. Á myndinni er hann að bjóða viðskiptavininn velkominn á "hardgay bensínstöð". Leikarinn lítur svona út. Get ekki lesið nafnið hans þannig að hann heitir líklega ekki neitt. Í þættinum í gær var hann að kenna börnum að búa til samlokur hardgay-style. So Extreme.


Annað sjónvarpsefni sem hefur rokkað undanfarið er dansþátturinn Chample sem er alltaf sýndur á þriðjudagskvöldum. Þessi þáttur er með svona "voting system" á netinu og svo í hverri viku koma dansararnir og bösta mauv. Í seinasta þætti voru tveir 14 ára geðsjúkir breikarar, Cool Crew Jr., í öðru sæti. Mjög svo sjúkt. Svo er líka fyndið artí pakk þarna inni á milli og svo mjög svo yfirdrifnir hip hop dansarar af báðum kynjum. Ef ég fæ ekki þetta upptekið á DVD eða spólu áður en ég fer heim þá verð ég að gráta.


Um leið og ég heyrði þetta lag þá ákvað ég strax að ég yrði að smella því hérna upp. Þetta er einhver sæmilega vel þekkt grúppa en alls ekkert súper-vinsæl. Þetta er nefnilega lag sem að hljómar eins og mjög steríótýpískt japanskt popplag en er bara eitt af meira extreme dæmunum hvernig popptónlistin getur verið. Mest allt draslið sem maður heyrir úti á götu og inní búðunum eru bara ballöður og strákagrúppur. Stillið hátt og njótið.

Fer í karaoke um miðjan dag í næstu viku vegna þess að það er ódýrt. Ætla að reyna að sjá Soil & Pimp Sessions í þessum strandklúbb síðar í mánuðinum. LaserDiska söfnunin er orðin góð, þarf að stoppa núna til að geta tekið þetta með heim. Fann japanska psych-rokk plötu um daginn og hún er mjög góð. Á morgun byrjum við á nýrri kennslubók í japönsku. Sugoi.