Tuesday, August 02, 2005

Silja

Það gæti farið svo að ég loksins nái því að gista í svokölluðu "capsule" hóteli. Fyrst að ég náði að redda mér fríi ætla ég að bomba mér á Ueda Jazz Festival og sjá Soil & Pimp Sessions einu sinni enn áður en ég fer heim.


Það hafa fáar nýjar uppgötvanir með finnska tungu að gera orðið upp á síðkastið en við komust samt að því að mella, eða metla á finnsku, er rannsóknarstofa fyrir skógrækt í Finnlandi. Mella totta tos'í'ann páskakunta.

Eftir að ég kom á svæðið hef ég farið í nokkur partí á Expo svæðinu sem hafa verið haldin af ýmsum skálum eftir að svæðinu lokar klukkan níu. Fyrst að allir nema Norðurlandaskálinn voru búnir að halda partí þá var ákveðið að halda eitt slíkt og bjóða öllu starfsfólkinu af Expo að mæta. Undirbúningurinn var mikill anall en partíið lukkaðist vel. Tróð upp sem TZMP og söng þrjú lög en herra Zuckakis var sárt saknað. Viðtökurnar voru góðar og gömul japönsk kona tók öll þrjú lögin upp á vídjó og káfaði á pungnum á mér aðeins sem var ágætt. Myndir.


Er eiginlega alveg hættur að horfa á sjónvarpið. Veit ekki hvort að stöðvarnar hérna eru mikið öðruvísi en Tokyo dæmið en ég hef bara ekkert nennt að kveikja á tellíinu. Sá eitt samt um daginn sem endurvakti trú mína á ruglinu sem kemur úr japönsku sjónvörpum. Í einum þættinum voru þrír bakarar fengnir að keppa um hver gæti gert bestu animated stuttmyndina sem er bara gerð úr brauði og kruðeríi. Gaurinn sem vann var með einhverja sögu um einhvern snúð sem var að bjarga kleinuhringjaprinsessu. Svo fengu þeir fína leikara til að talsetja dótið og allt.


Nýja mini-albúmið frá þessum mönnum kom út í júlí og ég náði mér í eintak í gær. Þeir eru að fara að spila í London í lok þessa mánaðar sem væri töff að sjá en ég verð of upptekinn við að vera blankur til að geta farið. Nýja vídjóið þeirra er líka flott. Hef aldrei séð jafnmikið af nöktu heimilislausu fólki í einu tónlistarmyndbandi. Frábært.

Vinnan er mikið trans. Var rosalega gaman fyrstu dagana og er ennþá fínt en byrjunar borealis áhrifin eru að dvína. Maður hittir samt alltaf fínt fólk, dúllulega krakka og maníska aðdáendur Expo sem að safna eiginhandaáritunum frá fólki veraldar til þess að myrða síðar meir. Maður er kominn í svaka rútínu með alla hluta skálans og maður segir nokkurn veginn sama hlutinn aftur og aftur allan daginn.

Góðan daginn! Velkomin! Hér verður tilvera ykkar að Norðurlandaskálanum!
Þetta er íslenskt hraun! Endilega snertiði.
Þetta er sænskur smiður, endilega snertiði hann.
Kanntu að brjóta pappabát?? Ef ekki skal ég kenna þér!
Já, póstkortin eru gefins.
Takk fyrir komuna!


Ég hef reyndar verið aðeins í því að segja fólki totta tos'í'ann og páskakunta í innganginum því fólkið heldur sjálfsagt að þetta þýði bara halló og góðan daginn.

Annað töff við vinnuna er fótboltamótið sem er haldið hérna. Heimsmeistaramót. Það eru 120 þjóðir sem taka þátt í Expo þannig að það er alltaf frekar fjölmennt á þessum fótboltamótum. Bara í gær og í dag vorum við að keppa við Mexíkó, Pólland og Ástralíu. Mexíkanarnir voru andfúlir og Pólverjarnir voru allir skítugir gaunar sem reyndu að stela veskjunum okkar meðan að við vorum að horfa á fjölskyldusirkús. Myndir.


Frí á morgun og Kato er víst með einhverja gjöf handa mér og Ragga, líklega eitthvað í tengslum við hjálpina í kringum Íslands-tengdu viðburðina í Chiryu. Vona bara að það sé ekki neitt kynferðislegt. Hann gæti ætlað að bjóða okkur að gefa sér handjob í þakklætisskyni. Annars fer ég til Ueda á föstudaginn og það fer að líða að lokunum hérna í vinnunni. Kazu og félagar hans frá Chiryu sem ég var að kynnast ætla svo að hjálpa til með grillveislu sem verður hérna daginn áður en ég fer. Keypti mér líka eater diskinn og hann er töff. Mikill sviti.