Monday, July 18, 2005

Fyrirgefðu, kúkur.

Fyrst að ég átti frí í vinnunni ákvað ég að taka einn daginn snemma og kíkja til Kanayama þar sem ég ætlaði að hitta á hann Kato síðar um daginn. Labbaði um þar til að ég áttaði mig á því að þessi staður er skítapleis. Fann samt eina stóra verslunarmiðstöð og þar inni lærði ég hvernig á að biðja pabba sinn eða einhvern annan pabba að skeina sér. Maður segir Otoosan, iru!.


Eitt af fyndnari kvöldum hérna var þegar að hópur af fólki sem er að vinna í Norðurlandaskálanum á Expo fór saman á staðinn J Max. Það sem dróg alla saman á þennan stað var að það voru tvö dansgólf og ódýrir drykkir. Þegar ég labbaði inn kom bara bros á mig sem hélst á mér næstum allt kvöldið. Tilfinningin var samblanda af örlítilli hræðslu og gleðilegri undrun. Ég var komin í samkunduhús ikemen gauranna, alvöru stað þar sem þetta fólk heldur sig. Ég hélt alltaf að þetta væri bara eitthvað stórt djók. Það sem ég komst að var að þessi hópur dansar við trance tónlist og allir kunna allaveganna einn dans sem að allir eiga að gera samtímis á ákveðnum stöðum í lögunum. Þetta spesimen af japönskum karlmanni eyðir líka miklum tíma við vaskinn á klósettinu til að rétta af þennan eina lokk sem að var búinn að vera til vandræða og spreyja á sig einhvers konar spreyji sem að ég held gerir þá fallega. Mest sjokkerandi uppgötvunin var að þeir eru allir með vagínur á bakinu.


Finnarnir i vinnunni eru algjörir snillingar. Út af því að finnska er svo steikt tungumál. Það er einn í vinnunni sem heitir Sami (borið fram Sammy) sem að talar með svo þykkum finnskum hreim og er svo mikill dóni að ég hlæ alltaf þegar hann byrjar að tala, jafnvel þótt að hann sé að tala um eitthvað mjög leiðinlegt. Framburðurinn er svo hressandi.

Það varð allt alveg klikkað í vinnunni fimmtánda þegar að íslenski dagurinn var á Expo. Við fengum 2 kóra í heimsókn og slatta af tónlistarmönnum, svo ekki sé talað um Dóra Ásgríms og Toggu Katrínu á sýninguna sem var haldin og svo í skálann. Fyrst að ég er einn af þessum fáu sem að tala einhverja íslensku var ég fenginn til að kenna Halldóri Ásgrímssyni til að setja skilaboð á A4 pappírsblað með hjálp tölvu og brjóta saman pappabát úr blaðinu. Það dæmi er seinasti hluti skálans. Hann skrifaði We have to work together og fleytti svo bátnum. Mjög "inspiring".


Það var einhver sérstaklega klár bissnessmaður sem að hefur ákveðið að gera þennan vöðvasöngleik. Þetta er einhver risaframleiðsla og undir lokin af dvölinni í Tokyo var verið að bomba auglýsingum um þetta upp í analinn á fólki.

Kvöldið fyrir íslenska daginn var okkur Ragga boðið í kvöldverðarboð og móttöku í Chiryu. Nagahata-sensei var kynnir kvöldsins og var að drepa allt heilvita fólk þarna inni með túlksstarfsemi. Hún var að þýða ræðu hjá formanni einhvers frímúraradæmis og toppaði slæmu þýðinguna með því að segja Please cooperate us! með sinni skræku og óþægilegu röddu. Svo kunni hún ekki heldur að nota míkrafón, blessunin.

Plönin hafa breyst einu sinni enn. Ég kem núna heim 14. ágúst.


Fann þennan bol í dag. Hefði hann ekki verið svona dýr þá hefði ég verslað mér hann. Finnst þetta help me!! mjög flott "touch" á annars mjög cutting-edge bol. Meiri myndir af bull ensku og undarlegheitum.


Þegar ég kíkti út að éta með hóp af vinum Kato þá náði ég að fá Uno til að teikna mynd af mér. Svo ætla ég að transa þá mynd í nafnspjald sem verður heitt dæmi. Bað sérstaklega um að vera á bakinu á "stóru tígrisdýri" og haldandi á keytar. Vinna á morgun og non-stop í viku. Hætti að vinna eftir Múmín-daginn 9. ágúst. Ég þarf kannski að fara að klæðast víkingabúningi annað slagið í vinnunni. Þá get ég loksins farið að hræða börn og fengið borgað fyrir það.